Gunnlaugur Dan Ólafsson, fyrrverandi skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur, hefur verið ráðinn skólastjóri Grunnskóla Þingeyrar og hefur þegar tekið til starfa. Fjórir sóttu um starfið en ,,í ljósi menntunar og reynslu Gunnlaugs Dan Ólafssonar, mælir fræðslunefnd Ísafjarðarbæjar með því við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, að hann verði ráðinn skólastjóri við Grunnskólann á Þingeyri.
Gunnlaugur Dan Ólafsson lét af störfum skólastjóra Grunnskólans í Grindavík í fyrra vor eftir 30 ára starf við skólann. Gunnlaugur starfaði fyrstu tvö árin sem kennari við skólann uns hann tók við sem skólastjóri.