Grindavíkurstelpur hefja leik í úrvalsdeild kvenna í körfubolta í kvöld þegar liðið sækir Hauka heim kl. 19:15. Kvennalið Grindavíkur tefldi ekki fram bandarískum leikmanni á síðustu leiktíð. Fyrir vikið náði Grindavík ekki að blanda sér í toppslaginn og því var ákveðið að bæta úr því í ár. Grindavík virðist hafa verið sérlega heppið í ár en liðið samdi við Michele De Vault sem er 23 ára og 180 sm framherji.
Michele er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað inn í teig og eins fyrir utan. Hún var með 13 stig og 4,3 fráköst að meðaltali á lokaári sínu með East Tennessee State skólanum en hún útskrifaðist þaðan í desember í fyrra.
Hún segist eiga von á því að spila mun meira undir körfunni með Grindavík en í háskólaboltanum í Bandaríkjunum en hún muni þó gera töluvert af því að draga sig út fyrir þriggja stiga línuna því þriggja stiga skot eru hennar sérgrein.
„Mér líst rosalega vel á stelpurnar í liðinu. Þær vinna vel saman og það er augljóst að þær hafa spilað lengi saman. Þær eru virkilega góðar í skotunum og virka vel þjálfaðar. Mér sýnist stefna í mjög skemmtilegt tímabil. Mitt markið er einfaldlega að vinna allt sem hægt er að vinna, annars væri ég ekki í þessu," segir Michele og hlær.
Hún hvetur bæjarbúa til þess að fjölmenna á leiki liðsins í vetur.