Á fundi bæjarstjórnar í gærkvöldi lagði Garðar Páll Vignisson (V) bæjarfulltrúi fram tillögu þess efnis að til þess að gefa foreldrum tækifæri til að verja meiri tíma með börnum sínum á aldrinum eins til tveggja og hálfs árs aldurs, greiði Grindavíkurbær foreldrum 50.000 kr. mánaðarlega á hvert barn á þeim aldri svo fremi barnið sé ekki á leikskóla eða í dagvist.
Í greinagerð með tillögunni segir að í dag sé biðlisti eftir leikskólavistun og ljóst að bregðast verði við þeirri staðreynd.
,,Með því að bjóða foreldrum upp á valkost eru líkur á að einhverjir foreldrar velji að hafa börnin sín heima. Kostnaður bæjarsjóðs með hverju barni eru 70.000 kr. í leikskóla í dag. Þá brúast það bil sem er á milli loka fæðingarorlofs og vistunarmöguleikar í leikskóla að einhverju leiti," segir jafnframt í greinagerðinni.
Á bæjarstjórnarfundinum kom fram breytingartillaga þess efnis að vísa málinu til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2010 og varð það samþykkt.