Kvenfélag Grindavíkur hélt glæsilegt konukvöld í Lavasal Bláa lónsins um síðustu helgi. Kvöldið heppnaðist frábærlega vel. Kona kvöldsins var valin Bára Ágústsdóttir en hún mætti með mikinn ættboga með sér, dætur, tengdadætur og tvö barnabörn. Þá voru hressar konur úr Kvenfélagi Grímseyjar gestir á konukvöldinu en karlarnir þeirra voru sendir í óvissuferð um Grindavík á meðan.
Séra Jóna Hrönn Bolladóttir var veislustjóri kvöldsins. Hera Björk Þórhallsdóttir tók lagið, þarna voru heimatilbúin atriði, málverkauppboð og ýmislegt fleira.
Fleiri myndir má sjá á http://www.saltytours.is/myndir/myndir/id/15