Heimasíðan hefur verið beðin um að birta eftirfarandi tilkynningu:
,,Það er okkur algjörlega óskiljanlegt hvers vegna formaður bæjaráðs Grindavíkur ákvað að gera Járngerði að kynningarriti fyrir sjálfa sig. Þar reynir hún að mikla sjálfa sig með þvi að lítillækka pólitíska andstæðinga sína og það á kostnað bæjarins.
Þetta blað hefur hingað til verið algjörlega óháð og engar pólitískar greinar né önnur skrif bæjafulltrúa hafa verið í því þar til nú. Nú er nóg komið. Við viljum alls ekki að bæjarsjóður beri kostnað af pólitískum skrifum bæjarfulltrúa hvorki á heimasíðu bæjarins né í Járngerði. Við viljum benda oddvita Framsóknarflokksins á að halda úti heimasíðu sjálf ef hún hefur svona mikla þörf á því að kynna sjálfa sig.
F.h. stjórnar,
Magnús Már Jakobsson"