Í lok síðasta árs var ákveðið að veita börnum upp að 16 ára aldri ókeypis aðgang að Sundlaug Grindavíkur. Þessi ákvörðun bæjaryfirvalda hefur skilað sér í því að talsverð aukning hefur verið í aðsókn barna að sundlauginni eins og fram kemur í Járngerði sem kom út í vikunni. Allt árið í fyrra voru heimsóknir barna 7.034 en á fyrstu átta mánuðum ársins 2009 eru heimsóknir orðnar 10.234 sem er aukning um 46%.
Þessi ákvörðun hefur ekki bara skilað sér í fjölgun heimsókna hjá börnunum því aðsókn fullorðinna hefur einnig aukist og um 16%. Ef teknar eru saman tölur fyrir bæði börn og fullorðna er aukning frá árinu 2008 og á fyrstu 8 mánuðum ársins 2009 um 30%.