Leikhúsferđ eldri borgara í Grindavík

  • Fréttir
  • 13. október 2009

Félag eldri borgara í Grindavík í samstarfi við Grindavíkurbæ hyggst efna til leikhúsferðar fyrir eldri borgara í Grindavík. Farið verður á sýninguna UTAN GÁTTA, eftir Sigurð Pálsson. Sýnt er í Kassanum við Þjóðleikhúsið. Sýningin er laugardaginn 14. nóvember og hefst kl. 17:00.

Miðaverð á sýninguna er 2.800 kr. Félag eldri borgara í Grindavík greiðir rútukostnað. Þeir sem hyggjast nýta sér þetta og koma með eru beðnir um að skrá sig fyrir 1. nóvember n.k. Við skráningum taka Kristinn J. Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi í síma 420 1100 og Ólöf Ólafsdóttir, formaður eldri borgara í síma 554 5143.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir