Athyglisverð úttekt er í Morgunblaðinu um helgina þar sem farið er yfir uppalda leikmenn í efstu deild karla í knattspyrnu. Félögin tólf í úrvalsdeild tefldu samtals fram 141 uppöldum leikmanni á árinu í stað 120 árið á undan. Grindavík er þar í 4. sæti með 52% hlutfall uppaldra leikmanna í sumar, FH er í 3. sæti með 58%, Fylkir í 2. sæti með 61% og Breiðablik í 1. sæti með 77%. Fjögur Reykjavíkurfélög skipuðu sér í fjögur neðstu sætin.
Hjá FH og Fylki fjölgaði heimamönnum í byrjunarliði mest, eða úr fjórum í sjö, og hjá Grindavík úr tveimur í fimm. Hjá Þrótti og ÍBV fækkaði heimamönnum í hópnum en hjá Grindavík, Val og KR stóð fjöldi þeirra í stað.
Skilgreiningin á uppöldum leikmanni hjá Morgunblaðinu er talinn sá sem byrjar að spila með viðkomandi félagi áður en hann verður 17.