Sigurður A. Kristmundsson formaður skipulags- og bygginganefndar, lagði til að athugun og skráningu á senditíðni og sendistyrk loftneta og fjarskiptamastra í nágrenni Grindavíkur og hugsanlega áhættu af staðsetningu þeirra fyrir umhverfi og heilsu bæjarbúa.
Nefndin fól forstöðumanni tæknideildar og formanni nefndarinnar að óska eftir upplýsingum frá viðeigandi fyrirtækjum og stofnunum sem bera ábyrgð á fjarskiptamálum í Grindavík og nágrenni. Nefndin óskar ennfremur eftir umsögn umhverfisnefndar á málinu.