Staða umsjónarmanns við Hópsskóla er laus til umsóknar. Um 100% starf er að ráða, ráðningatími er frá 1. desember 2009. Mikil áhersla er lögð á:
- Mildi í samskiptum, vilja til að vinna með öðrum, sjálfstæði, frumkvæði, fordómaleysi og umburðarlyndi. Í Hópsskóla eru allir í sama liðinu og vinna saman að því að skapa vinnuumhverfi þar sem öllum líður vel.
Helstu verkefni eru m.a.:
§ Fylgist með ástandi húss, muna og lóðar.
§ Annast eftirlit og viðhald á húsbúnaði.
§ Ber ábyrgð á ræstingu og hreingerningu innan húss og utan. Annast snjómokstur frá dyrum skólans.
§ Sér um allar merkingar á rýmum innan dyra.
§ Sér um innkaup á hreinlætisáhöldum og þvottaefnum og ber ábyrgð á því að
hreinsiefni sem notuð eru skaði hvorki yfirborðsefni né umhverfi.
§ Umsjónarmaður sinnir einnig öðrum þeim verkefnum sem skólastjóri kann að fela honum, enda samrýmist þau starfssviði hans.
Menntunarkröfun: Iðnmenntun sem nýtist í starfi. Laun samkvæmt kjarasamningi starfsmannafélags Suðurnesja við Launanefnd sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 20. október. Umsókn með starfsferilsskrá, menntun og meðmælum skal senda á maggyh@grindavik.is.
Nánari upplýsingar gefur Maggý Hrönn Hermannsdóttir, skólastjóri Hópsskóla, í síma 660 7325.