Knattspyrnuvertíðinni lauk um helgina þegar Grindavík tapaði fyrir Breiðablik 3-0. Grindavík varð í 9. sæti af 12 liðum. Óli Stefán Flóventsson, leikmaður Grindavíkur hefur ákveðið að taka við 3.deildarliði Sindra frá Höfn í Hornafirði en hann mun skrifa undir hjá félaginu á næstu vikum. Óli Stefán hefur lengst af á sínum ferli leikið með Grindavík en hann ákvað á dögunum að skoða möguleika á að fara í þjálfun og í kjölfarið höfðu nokkur félög samband.
,,Ég fékk tvær formlegar fyrirspurnir og það voru einverjar þreifingar en konan mín er þaðan (frá Hornafirði) og þetta varð fyrir valinu," sagði Óli Stefán við Fótbolta.net í dag.
,,Ég sé ýmsa möguleika þarna í stöðunni. Þeir eru með frábæra aðstöðu og það er mikið af ungum strákum að koma upp. Ég held að það sé sniðugt skref að byrja þjálfaraferil minn þarna. Þeir fóru ekki í úrslit núna en við reynum að bæta úr því."
Óli Stefán ætlar einnig að spila með Sindra en á ferli sínum hefur hann leikið hinar ýmsu stöður á vellinum.
,,Ég ætla að spila með en ég ætla að láta það mæta afgangi hvar ég spila. Ég ætla fyrst og fremst að láta þá spila sínar stöður og ég mæti síðan afgangi og spila þar sem þess þarf," sagði Óli Stefán sem gæti rifjað um gamla takta í fremstu víglínu.
,,Ég á bara eftir að skora í þessari deild, ég er búinn að skora í öllum öðrum deildum þannig að ég athuga kannski hvort það vanti ekki senter þarna," sagði Óli Stefán að lokum léttur í bragði.
Nú er ljóst að töluverðar breytingar verða á Grindavíkurliðinu fyrir næsta tímabil. Óli Stefán og Eysteinn Hauksson eru hættir og ekki verður samið við alla útlendingana. Þá hefur sænska liðið Malmö sýnt Jósef Kristni Jósefssyni mikinn áhuga og fór hann út í morgun til Svíþjóðar þar sem hann verður til reynslu hjá Malmö í viku en þetta er stærsta félagið á Norðurlöndunum.