GRAL sýnir Horn á höfði bæði laugardag og sunnudag. Sem kunnugt er fékk Horn á höfði 5 stjörnur eða fullt hús stiga í gagnrýni Fréttablaðsins á dögunum og þar sem sagði m.a. að handritið væri gríðarlega vel unnið og salurinn veltist um af hlátri.
Næstu sýningar eru:
Laugardaginn 26. september kl. 14.00
Sunnudaginn 27. september kl. 14.00
Laugardaginn 3. október kl. 14.00
Sunnudaginn 4. október kl. 14.00
Sýnt í Hafnargötunni Grindavík. (Beint á móti Saltfisksetrinu, gengið inn hjá Mamma Mia).
Miðasala á www.midi.is í síma 823-5477 eða í gegnum grindviska.gral@gmail.com