STÍLL er keppni þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun, og í ár verður Stíll 2009 sú níunda af þessu tagi sem haldin er á vegum Samfés. Keppnin verður haldin laugardaginn 21.nóvember í Kópavogi.
Undirbúningur fyrir keppnina er að hefjast og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta á kynningarfund í Þrumunni n.k. mánudagskvöld, 28. sept. Guðrún Ásta mun leiða ykkur í gegnum ferlið og aðstoða við undirbúning. Undankeppni fyrir aðalkeppnina verður haldin í Sandgerði 30. október.
Keppnin í ár: Þema keppninnar í ár er Endurvinnsla
og eiga liðin að vinna út frá því. Nú er um að gera að láta hugmyndaflugið njóta sín.
Mæting á aðalkeppnina:
Liðin mæta til undirbúnings á keppnisdag og hefst keppnin klukkustund síðar, og stendur í tvær klukkustundir. Af því búnu hefst sýning frá liðum félagsmiðsstöðvanna og í kjölfarið verða úrslitin kynnt.
Á meðan liðin gera sig klár verða ýmis skemmtiatriði á sviði, m.a. tískusýningar, söngatriði frá unglingum og ýmsar þekktar hljómsveitir spila órafmagnaðar.
Verðlaun:
Veitt verða verðlaun fyrir efstu fimm sætin, auk þess sem sérstök verðlaun verða veitt fyrir hár, förðun og fatahönnun, meðal verðlauna er farandstytta.
Veitt verða aukaverðlaun í ár, en það eru verðlaun fyrir vinnu á möppu.
Mappan er vinnumappa hvers hóps, þar sem sýnt er vinnuferli á flík, myndum af flík, hár og förðun, auk útskýringa. Hvað efni er verið að nýta? Hvaða hugmynd er á bakvið flíkina?
Dómarar styðjast við möppuna þegar þeir kjósa í úrslit. Því betri sem mappan er, því betra er fyrir dómara.
Forstöðumenn eða umsjónaraðilar félagsmiðstöðva eru beðnir um að stilla efniskostnaði í hóf og gæta þess að módelin séu klædd innan almennra sið¬ferðis¬marka.
Skráning: Skráningafrestur er til 1. nóvember 2009.
Skráning er á netfangið: margret@itk.is
Í skráningu þarf að koma fram: fullt nafn á þátttakendunum fjórum og hvert þeirra er módelið, einnig þarf að koma fram frá hvaða fél¬ags¬mið¬stöð þeir koma.
Til að kynnir geti gert okkur góða grein fyrir hverri flík / hönnun á sviði, viljum við fá efnislýsingu og hugmyndir á bakvið flíkina eigi síðar en 10. nóvember.
Eiga það bara að vera 2 til 4 línur .
Upplýsingar og mat: Á heimasíðu Samfés, www.samfes.is verður að finna upplýsingar um Stílinn, dagskrána og myndir af keppninni þegar henni er lokið. Einnig verður á heimasíðunni matskerfi fyrir áhorfendur, þátttakendur og starfsmenn. Þetta matskerfi hjálpar okkur í að gera góðan viðburð betri, svo endilega takið þátt og leggið ykkar af mörkum í að bæta gæði Stílsins.
Markmið
- Hvetja unglinga til listsköpunar og um leið gefa þeim aukin tækifæri til frumlegrar hugsunar og sköpunarhæfileika.
- Vekja jákvæða athygli á því hvað unglingar eru að gera á sviði sköpunar og gefa þeim kost á að koma sínum hugmyndum á framfæri utan félagsmiðstöðvanna.
- Að unglingarnir komist í kynni við fleiri sem hafa áhuga á sama sviði.
Reglur
1. Að klæðnaður sé innan siðferðilegra marka. Miðað skal við að a.m.k. 1/3 hluti líkamans skuli vera hulinn flík.
2. Hver félagsmiðstöð má senda eitt lið, skipað 2 til 4 einstaklingum (þar með talið módelið) úr 8.-10. bekk í grunnskóla.
3. Öll vinna keppenda við módel verður að fara fram á svæðinu, ekki er heimilt að undirbúa módelið á neinn hátt áður en að keppnin hefst.
4. Á keppnisstað verða þátttakendur að standa sjálfir skil á sinni hönnun/sköpun og utanaðkomandi aðstoð er bönnuð (svo sem starfsmenn, foreldrar eða aðrir).
5. Teikningar og útskýringar verða að afhendast umsjónarmönnum keppninnar áður en keppni hefst (við komu liðs í Íþróttahús Smárans).
6. Mikilvægt er að starfsmenn félagsmiðstöðva athugi og fylgist með efniskostnaði keppnisliða og reyni að stýra því að hann sé innan skynsamlegra marka. Ágætt er að miða við að heildarkostnaður fari ekki upp fyrir 15.000 krónur á hóp.
7. Í byrjun nóvember verða send til ykkar eyðublöð sem ætluð eru til að skrifa niður hvaðan efni eða hlutir í búning eru fengin og hvað þau kostuðu. Afrit af kvittunum skal fylgja blaðinu. Séu hlutir fengnir gefins eða lánuð skal tekið fram hvar/hver hafi gefið/lánað efnið eða hlutinn.