Auglýst er eftir styrkumsóknum til Menningarráðs Suðurnesja vegna menningarstarfs og menningartengdrar ferðaþjónustu á grunni samnings sveitarfélaga á Suðurnesjum og menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis um menningarmál. Umsóknarfrestur er til 15. október 2009.
Upplýsingar um styrkumsóknir verða veittar á skrifstofum allra sveitarfélaga á Suðurnesjum og á skrifstofu SSS Iðavöllum 12b. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á vefsíðum SSS http://menning.sss.is og á vefsíðum sveitarfélaganna og þar er að finna umsóknarform sem hægt er að prenta út (sjá hér).
Verkefni sem geta komið til greina:
1. Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
2. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
3. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
4. Verkefni sem stuðla að eflingu fagþekkingar á sviði menningar og lista.
Skriflegum umsókn skal skila í 7 eintökum á skrifstofu SSS Iðavöllum 12b í síðasta lagi kl. 16:00 fimmtudaginn 15. október 2009.