Síðast liðin föstudag var haldið fyrsta ball vetrarins í félagsmiðstöðinni Þrumunni. Jafnframt var tilefni til að fagna heimkomu Frank Bergmanns. Að hans tilstuðlan mættu Svali á FM957 og Magni Ásgeirsson á svæðið. Svali sá um danstónlistina og svo söng Magni nokkur lög og fékk unglingana til að taka vel undir. Mikil ánægja var á meðal unglinganna með þetta ball og rétt að þakka Frank kærlega fyrir boðið. Skemmtu sér flestir konuglega.
Stappað á dansgólfinu
Magni með gítarinn.