Mikið var um dýrðir í Gula húsinu, félagsheimili knattspyrnudeildar, í gær þegar þrjú tímamótalið í sögu fótboltans komu saman til að rifja upp gamla tíma í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá því Grindavík tók fyrst þátt í Íslandsmóti í knattspyrnu.
Grindavík lék fyrst 1969 á Íslandsmóti í C-deild og fékk reyndar aðeins eitt stig þetta sumar en þá lék liðið í Suðurnesjariðli. En nokkrir úr liðinu mættu í gær og rifuðu upp gamla tíma og sögðu skemmtilegar sögur úr boltanum svo gestir veltust um af hlátri.
Þá mætti liðið sem lék í C-deild 1989 og náði þeim langþráða áfanga að komast upp í B-deild eftir hörku baráttu við ÍK allt sumarið. Grindavík lagði Hveragerði í lokaleik mótsins í einum sögulegasta knattspyrnuleik Íslands en veðrið var svo vont að leikhléið var ein klukkustund. En leikurinn var kláraður, Grindavík vann 3-0 og komst upp í næst efstu deild. Leikmenn liðsins rifjuðu upp margar skemmtlegar sögur, sérstaklega frá þessum fræga leik á Grindavíkurvelli gegn Hveragerði.
Einnig var mættur hluti af sögufrægu Grindavíkurliði frá 1994 sem tryggði Grindavík sæti í efstu deild undir stjórn Lúka Kostic og komst jafnframt í úrslitaleik bikarkeppninnar gegn KR. Þetta var eitt stærsta sumar í sögu fótboltans í Grindavík og gaman að Lúka skuli vera þjálfari Grindavíkur í dag og Milan Stefán Jankovic, sem var leikmaður þá, aðstoðarþjálfari liðsins.
Allur þessi hópur átti góða dagstund þar sem rifjaðar voru upp gamlar minningar úr boltanum. Síðan fylgdust þessar kempur með leik Grindavíkur og Fram sem því miður tapaðist 3-1.
Liðið 1994 sem kom Grindavík upp í efstu deild og í úrslit bikarkeppninnar. Frá vinstri: Þórarinn Ólafsson, Páll Valur Björnsson, Ólafur Ingólfsson, Gunnar Már Gunnarsson, Grétar Einarsson, Lúka Kostic, Milan Stefán Jankovic, Brynjar Bergmann Pétursson nuddari og Guðjón Ásmundsson.
Liðið frá 1989 sem náði þeim langþráða áfanga að komast upp í B-deild. Efri röð f.v. Þórarinn Ólafsson, Páll Valur Björnsson, Albert Sigurjónsson, Helgi Bogason, Ólafur Ingólfsson, Ragnar Eðvarðsson, Pálmi Ingólfsson og Rúnar Sigurjónsson.
Neðri röð f.v. Grétar Schmidt, Skúli Jónsson, Bjarni Ólason og Garðar Páll Vignisson.
Frumherjarnir í fótboltanum í Grindavík, hluti af liðinu sem tók þátt í fyrsta Íslandsmótinu 1969. Frá vinstri: Fyrsti formaður knattspyrnudeildar Jón Leósson, Theódór Vilbergsson, Gunnar Sigurðsson, Ólafur Guðbjartsson, Aðalgeir Jóhannsson og Hermann Guðmundsson.