Vinningshafar í ratleiknum ,,Finna féð" í Þórkötlustaðarétt eru: Alexandra Bergmann Bjarnadóttir, Reykjanesbæ, Ingunn Halldórsdóttir, Reykjavík og Freydís Guðmundsdóttir, Reykjanesbæ. Vinningar eru fallegar handunnar vörur úr ull, hannaðar af Þorgerði Kjartansdóttur, Grindavík og Katrínu Steingrímsdóttur, Reykjanesbæ.
Hönnuðir voru með sölubása á haustmarkaðinum auk 15 annarra aðila sem buðu upp á ýmsan varning.
Hjónunum í Stafholti þeim Guðmundu og Páli er þökkuð sérstaklega afnot af skemmunni fyrir markaðinn og Páli sem teymdi stöðugt undir börnunum, sem biðu í langri röð eftir að komast á hestbak.
Vinningshöfum í ratleiknum er óskað til hamingju og öllum aðilum er þökkuð þátttakan á réttardaginn.