2 dagar í Ţórkötlustađaréttir - Kaffisala, harmonikkuleikur og hestar

  • Fréttir
  • 17. september 2009

Nú eru aðeins tveir dagar í réttardaginn í Grindavík en Þórkötlustaðaréttir verða á laugardaginn kl. 14:00. Eins og áður hefur verið greint frá verður haustmarkaður kl. 13 og ratleikur í tengslum við réttirnar. En ýmislegt fleira verður á boðstólum eins og t.d. að starfsfólk á leikskólanum Króki verður með kaffisölu. Allur ágóði fer í að fjármagna námsferð þeirra.

Tónlistaratriði verður frá Harmonikkufélagi Suðurnesja. Jafnframt verða hestar í reiðhöllinni og geta börn fengið að fara á bak þar sem teymt verður undir þeim.

Upplifið sannkallaða réttarstemningu í Grindavík


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir