Nágrannaslagur í kvöld - Grindavík sloppiđ viđ fall

  • Fréttir
  • 16. september 2009

Það verður nágrannaslagur af bestu gerð í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í Reykjanesbæ í dag þegar Keflavík tekur á móti Grindavík. Athygli er vaktin á óvenjulegum leiktíma því leikurinn hefst k. 17:30. Þar sem Fjölnir tapaði fyrir Fram í gærkvöldi er Grindavík því sloppið við fall þegar liðið á þrjá leiki eftir.

Keflavík og Grindavík hafa mæst 25 sinnum efstu deild, fyrst árið 1995. Það er nokkuð jafnt á komið með liðunum í innbyrðis leikjum þeirra; Keflavík hefur unnið 10 leiki, Grindavík 9 en sex sinnum hefur orðið jafntefli. Markatalan er 34-29 fyrir Grindavík. Stærsti sigur Grindavíkur var 4-0 sigur á Grindavíkurvelli árið 1996 en stærstu sigrar Keflavíkur er 3-0 heimasigrar árin 1998 og 2008 og 4-1 sigur í Grindavík árið 2002. Mesti markaleikur liðanna kom árið 2004 þegar Grindavík vann 4-3. Átta leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Grindavík í efstu deild. Guðmundur Steinarsson hefur skorað átta mörk, Jóhann B. Guðmundsson hefur skorað þrjú, Magnús Þorsteinsson, Haraldur Freyr Guðmundsson og Haukur Ingi Guðnason tvö og þeir Stefán Örn Arnarson, Hörður Sveinsson og Hólmar Örn Rúnarsson eitt mark hver.

Liðin hafa aðeins einu sinni mæst í bikarkeppninni en það var árið 1991. Keflavík vann þá á Keflavíkurvelli þegar Óli Þór Magnússon skoraði eina mark leiksins.

Keflavík og Grindavík léku 6 leiki í B-deildinni á árunum 1990-1992. Keflavík vann fjóra leikjanna en Grindavík einn og jafntefli varð í einum leik. Markatalan í leikjunum er 13-9 fyrir Keflavík.

Liðin léku fyrr í sumar á Grindavíkurvelli í 9. umferð Pepsi-deildarinnar. Þar varð 1-1 jafntefli þar sem Magnús Þorsteinsson skoraði fyrir Keflavík en Jósef Kristinn Jósefsson jafnaði fyrir heimamenn.

Það hefur verið þó nokkur samgangur milli Keflavíkur og Grindavíkur í gegnum árin enda ekki langt að fara. Magnús Þorsteinsson, leikmaður Keflavíkur, lék t.d. eitt tímabil með Grindavík og í liði Grindavíkur eru nú fjórir fyrrverandi leikmenn okkar, þeir Þórarinn Kristjánsson, Scott Ramsay, Eysteinn Hauksson og Óttar Steinn Magnússon. Þess má geta að Eysteinn skoraði einmitt fyrsta mark Keflavíkur gegn Grindavík í efstu deild. Í gegnum árin hafa m.a. Kristinn Jóhannsson, Ólafur Ingólfsson, Hjálmar Hallgrímsson, Þorsteinn Bjarnason og Zoran Ljubicic leikið með báðum félögunum. Þá má ekki gleyma því að Milan Stefán Jankovic, fyrrverandi þjálfari og nú aðstoðarþjálfari Grindavíkur, þjálfaði Keflavík 2003 og 2004 og gerði liðið m.a. að bikarmeisturum, samkvæmt samantekt Keflvíkinga á www.keflavik.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir