Starfsmaður óskast í 75% starf við Íþróttamiðstöðina í Grindavík. Unnið er á vöktum. Umsækjandi þarf að hafa þekkingu í skyndihjálp og standast kröfur sem gerðar eru til sundvarða, svo sem að taka sundpróf, samkvæmt reglugerð um öryggi á sundstöðum, umsækjandi þarf einnig að hafa góða færni í mannlegum samskiptum.
Í starfinu felst klefavarsla í kvennaklefum, aðallega í íþróttahúsinu ásamt ræstingu og öðru eftirliti, þarf einnig að geta tekið afleysingar í sundlauginni.
Umsækjandi þarf að hefja störf í byrjun janúar 2010.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Grindavíkurbæjar. Einnig er hægt að nálgast eyðublaðið hér og skila því í afgreiðslu bæjarskrifstofunnar.
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 2009
Nánari upplýsingar gefur undirritaður í síma 426-8244 og 660-7304
Íþróttamiðstöðin er reyklaus vinnustaður.
Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Grindavíkur.