5 dagar í Ţórkötlustađaréttir - Fjölbreyttur haustmarkađur

  • Fréttir
  • 14. september 2009

Réttardagurinn í Grindavík verður næsta laugardag en dregið verður í dilka í Þórkötlustaðarétt kl. 14:00. Smalað verður í afrétti Grindvíkinga næsta föstudag. Haustmarkaður verður starfræktur á svæðinu á laugardaginn þar sem fólk getur bæði skoðað og keypt ýmsa handunna vöru eins og prjónavöru, heklaðar vörur, skartgripi, sultur, áletruð kerti og margt fleira.

Það má því búast við mikilli stemmningu í réttunum á laugardaginn og Grindvíkingar hvattir til þess að mæta. Ýmislegt fleira skemmtilegt verður í boði á réttardeginum og verður greint frá því á heimasíðunni á næstu dögum.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir