Leikhópurinn GRAL fumsýnir barna- og fjölskylduleikritið Horn á höfði sunnudaginn 13. september klukkan 14:00 í húsnæði Mamma Mia að Hafnargötu 7a í Grindavík en þar er búið að innrétta virkilega smekklegt leikhús. Uppselt er á sýninguna.
Verkið skrifa þeir Bergur Þór Ingólfsson og Guðmundur S. Brynjófsson en þeir fengu tilnefningu til Grímuverðlauna á síðasta leikári ásamt Víði Guðmundssyni fyrir leikritið 21 manns saknað sem sýnt var í Saltfiskssetri Íslands.
Víkurfréttir tóku sjónvarpsviðtal við Víði Guðmundsson sem segir leikhúsið lítið og vinalegt og nógu stórt þar sem leikhúsgestir eru í mikilli nálægð við leikendur. Þá er sýnt brot úr verkinu og má heyra t.d. eitt lag sem Villi naglbítur semur líkt og aðra tónlist í leikritinu. Sjá nánar á http://www.vf.is/veftv/755/default.aspx
Grindavíkingar geta svo sannarlega verið stoltir af því að hafa atvinnuleikhús í ekki stærra bæjarfélagi. Leikritið höfðar til allrar fjölskyldunnar og eru Grindvíkingar hvattir til þess að sjá sýninguna.
Miðasala er á www.midi.is