Margrét Gísladóttir forstöðumaður bókasafnsins mætti á fund menningar- og bókasafnsnefndar í vikunni. Farið var yfir starfsemi bókasafnsins á komandi vetri. Norræna bókasafnsvikan verður um miðjan nóvember og vegna aðhalds í rekstri verður framkvæmd hennar ekki jafn viðamikil og verið hefur.
Rætt var um opnunartíma safnsins og aðsókn. Ekki hefur orðið nein umtalsverð aukning á aðsókn en það á eftir að fara betur yfir aðsóknartölur.
Margrét lýsti áhyggjum sínum yfir fyrirhugðum breytingum á húsnæði stjórnsýslunnar og sagði að bókasafnið mætti ekki við neinni skerðingu á húsnæði því ef eitthvað væri þyrfti bókasafnið meira rými.
Af því tilefni beinir menningar- og bókasafnsnefnd því til bæjaryfirvalda að hugað verði sem fyrst að framtíðarhúsnæði fyrir bókasafnið þar sem núverandi húsnæði hefur þegar sprengt utan af sér. ,,Nú er mál til komið að setja bókasafnið í fyrsta sæti og hugað verði að andlegri líðan bæjarbúa. Bókasöfn eru heilsulind hugans," segir í fundargerð nefndarinnar.