GRAL frumsýnir Horn á höfđi á sunnudaginn

  • Fréttir
  • 10. september 2009

GRAL - Grindvíska Atvinnuleikhúsið frumsýnir glænýtt íslenskt barnaleikrit, Horn á höfði, eftir Berg Þór Ingólfsson og Guðmund Brynjólfsson, næsta sunnudag í húsnæði GRAL í Hafnargötunni.
Verkið fjallar um tvo vini, Björn og Jórunni. Björn litli vaknar einn morguninn með horn á höfðinu. Hann fær Jórunni vinkonu sína til að hjálpa sér að komast að ástæðunni, því hann langar ekki að líta út eins og geit. Í leit sinni að sannleikanum renna þau inn í atburðarrás á mörkum ævintýris og veruleika.

Leikarar og listrænir stjórnendur:
Leikarar:
Víðir Guðmundsson, Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson.
Leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson.
Handrit: Bergur Þór Ingólfsson og Guðmundur Brynjólfsson.
Leikmynd- og búningar: Eva Vala Guðjónsdóttir.
Lýsing: Magnús Arnar Sigurðsson.
Tónlist: Vilhelm Anton Jónsson.
Teikningar: Högni Sigþórsson.

Sviðshreyfingar: Bergur Þór Ingólfsson og leikhópurinn.
Horn á höfði er spennandi og fyndin barna- og fjölskyldusýning með GRAL-leikhópnum sem tilnefndur var í fyrra, á fyrsta starfsári sínu, til Grímuverðlauna fyrir leikrit sitt 21 manns saknað.
Horn á höfði er sett upp í samstarfi við Grindavíkurbæ, með stuðningi frá Menningarsjóði Suðurnesja, Menntamálaráðuneytinu og Listamannalaunum.

Miðasala á leikritið er á www.midi.is.

Fyrstu sýningar:
13.09.09 - Sunnudagur 14:00 Horn á höfði - Leiksýning - UPPSELT Hafnargötu (Grindavík) GRAL 2.500 kr.
19.09.09 - Laugardagur 14:00 Horn á höfði - Leiksýning Hafnargötu (Grindavík) GRAL 2.500 kr.
27.09.09 - Sunnudagur 14:00 Horn á höfði - Leiksýning Hafnargötu (Grindavík) GRAL 2.500 kr.
27.09.09 - Sunnudagur 16:00 Horn á höfði - Leiksýning - UPPSELT Hafnargötu (Grindavík) GRAL 2.500 kr.
03.10.09 - Laugardagur 14:00 Horn á höfði - Leiksýning Hafnargötu (Grindavík) GRAL 2.500 kr.
03.10.09 - Laugardagur 16:00 Horn á höfði - Leiksýning - UPPSELT Hafnargötu (Grindavík) GRAL 2.500 kr.  


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir