Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum heimilaði með bréfi þann 15. júlí 2009 breytingar á forgangsrétti og uppsetningu á umferðarmerkjum við Laut og Dalbraut í Grindavík samkvæmt samþykkt Bæjarstjórnar Grindavíkur þann 14. maí sl.
Þann 27. apríl lagði skipulags- og bygginganefnd til við Bæjarstjórn Grindavíkur að fá samþykki lögreglustjórans á Suðurnesjum, að aðalbrautarréttur verði á Laut og Dalbraut. Biðskyldumerki verði sett upp við botnlanga frá húsnum nr. Laut 16, 14, 12 og 10. Biðskyldumerkið verði sett á útkeyrslu frá húsum nr. 5 og 7 við Dalbraut inn á götuna. En Víkurbraut njóti aðalbrautarréttar gagnvart Dalbraut og biðskyldumerki verði sett upp við Dalbraut.