Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum frá og með morgundeginum, 1. september. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri ekki vera úti lengur en til klukkan 20:00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22:00. Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum eða þau á leið heim frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.
Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum og hvetur Grindavíkurbær foreldra til að fara eftir þeim. Lögunum er m.a. ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu. Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn.