Um 100 manns mættu í Saltfisksetrið í Grindavík í gærkvöldi á samstöðufund þar sem fundað var um málefni HS Orku. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík, skýrði hvernig málið horfir við sveitarfélaginu og þeir Guðbrandur Einarsson, fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn HS veitna, og Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi VG í stjórn OR, fjölluðu um hvernig áformin líta út frá þeirra sjónarhóli. Í yfirlýsingu sem samþykkt eftir fundinn var skorað á ríkisstjórnina og sveitarfélög að koma í veg fyrir að Magma Energy kaupi enn frekar í HS Orku.
„Samstöðufundur haldinn í Grindavík þann 25. ágúst 2009 skorar á ríkisstjórn Íslands og sveitarfélög að koma í veg fyrir að fram gangi kaup Magma Energy á hlutum í HS orku og tryggja þannig áframhaldandi opinbert eignarhald á þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins," segir m.a. í yfirlýsingunni.
Þá segir: „Framsal auðlindarinnar í jafn langan tíma og gert er ráð fyrir í tilboði Magma ber að líta á sem varanlegt auk þess sem því fylgir augljós áhætta á að auðlindin verði uppurin að framsalstímanum liðum. Við þær aðstæður sem nú eru uppi í þjóðfélaginu er brýnt að lausafjárvandi samfélagsins sé ekki leystur með bráðræðislegum gjörningum þar sem stórum hagsmunum er fórnað. Fundurinn vill því heita á ríkisstjórn Íslands að standa vörð um sameiginlegar auðlindir landsmanna með langtíma hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi þar sem við ráðstöfun og nýtingu sé horft til þess að hámarka samfélagslegan og þjóðhagslegan ávinning af auðlindinni í sátt við náttúruna".
Fjármálaráðherra verður færð ofangreind yfirlýsing sem var einróma samþykkt á fundinum.
Í 10 fréttum Ríkissjónvarpsins var fjallað um fundinn, sjá nánar á http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4467523/2009/08/25/0/