Þessir ungu veiðimenn höfðu í nógu að snúast á bryggjunni í gær. Þeir voru mættir með veiðistangirnar til að dorga, allir í björgunarvestum nema einn, en þurftu einnig að sinna vængbrotnum máv sem rak óvænt á fjörur þeirra.
Veiðimennirnir fundu mávinn á bryggjunni og tóku hann undir sinn verndarvæng og hlúðu að honum í fiskikössum sem þeir fundu á bryggjunni. Aflann sem þeir drógu á land gáfu þeir sem sjúklingnum sem reyndar sýndi ufsanum ekki mikinn áhuga til að byrja með. Ljóst er að vængbrotinn fuglinn á sér ekki viðreisnar von en hugulsemi veiðimannanna ungu var aðdáunarverð.