Leik Grindavíkur og ÍBV sem átti að fara á sunnudaginn hefur verið frestað vegna inflúensufaraldurs sem stakk sér í herbúðir Grindavíkur. Tveir hafa greinst með svínaflensu. KSÍ frestaði leiknum í dag eftir að staðfesting barst frá lækni sem hafði skoðað leikmennina.
Alls eru 11 leikmenn liðsins með inflúensueinkenni. Einn bættist við í gærkvöldi og annar í dag.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær leikur Grindavíkur og ÍBV fer fram.
Í gær voru búningsklefar og svæðið við gula húsið sótthreinsað.