Texas Scramble golfmót til styrktar GRV kvenna í knattspyrnu verður haldið laugardaginn 22. ágúst næstkomandi. Mótið verður það hið veglegasta. Allir velunnarar kvennaknattspyrnu og áhugasamir kylfingar eru hvattir til að taka þátt.
Þátttökugjald kostar 3.500 kr.- á mann og innifalið í gjaldi er teiggjöf (Gatorade + samloka + súkkulaði).
Hámarksforgjöf KK er 24 og KVK er 28. Fundin er út forgjöf leikmanna með að finna spilaforgjöf beggja leikmanna og deila í með 5. ATH AÐ EKKI ER MÖGULEGT AÐ FÁ HÆRRI FORGJÖF Á VÖLLINN EN LÆGSTA FORGJÖF SPILARA Í LIÐI.
ATH. Mótanefnd áskilur sér þann rétt að meina þeim sem hafa óvirka forgjöf að vinna til verðlauna í mótinu.
ATH SÉRSTAKLEGA - Þeir sem skrá sig frá kl 12:50 - 13:40 munu spila efri völlinn fyrst og svo neðri völlinn tvisvar í röð! Spilarar sem skrá sig á þeim rástíma þurfa að vera alveg fullmeðvitaðir um það! Holur 10-18 munu telja sem seinni 9 hjá þeim ráshóp við röðun í sæti þó þeir hefji leik á 6. holu.
Athugið að það verður boðið uppá CADDY GIRL. Stelpurnar í GRV verða leigðar út sem kylfuberar og kostar ein CADDY GIRL 2.000 kr.- Panta þarf CADDY GIRL á hollinn sem spila frá kl. 08.30 - 10.00 fyrir kl. 20.00 á föstudaginn 21. ágúst. Þau lið sem byrja seinna en kl. 10.00 geta svo valið sér stúlku. Þetta eru um 16-20 stúlkur og því er betra að panta sem fyrst svo þær verða nú ekki uppseldar þegar þið mætið á staðinn. Pöntun á CADDY GIRL þarf að senda á netfangið petraros@simnet.is
Verðlaun verða eftirfarandi:
1.verðlaun 2x New Taylor Made Burner 10,5" driver regular verðm. 2 x 49.900 kr.-
2.verðlaun 2x Odyssey White Hot XG #9 34" pútterar verðm. 2 x 20.900 kr.-
3.verðlaun 2x gjafabréf frá Hérastubbi 1x30 manna marsipanterta
4.verðlaun 2x gjafabréf frá Hérastubbi 1x20 manna marsipanterta
Námundarverðlaun á 4./17. holu: Æfingapúttersett + Callaway golfkúlur fyrir þann sem á höggið samtals að verðmæti 10.000 kr.- og 5.000 kr.- gjafabréf í NTC sárabætur fyrir meðspilarann.