Heilbrigðisstofnun Suðurnesja biður fólk með inflúensueinkenni og þá sem hafa verið í samskiptum við fólk með inflúensueinkenni og hafa áhyggjur af því að að fara ALLS EKKI inn á heilsugæsluna í Grindavík eða í Reykjanesbæ, heldur gera eftirfarandi.
1. Vinsamlegast ekki koma inn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja án samráðs við símaráðgjöf eða fagfólk innanhúss.
2. Hringið í síma: 422-0600 eða 422-0500.
3. Bíðið í bíl eftir afgreiðslu.
4. Ekki koma í heimsókn á deildir án samráðs við hjúkrunarfræðinga/ljósmæður
Þetta er gert til þess að takmarka útbreiðslu smits