Frá og með 1. september nk. verður boðið upp á gamla góða hafragrautinn alla morgna á báðum leikskólunum í Grindavík, Laut og Króki.
Á heimasíðu Króks segir að ,,á síðustu mánuðum hefur fæðiskostnaður hækkað mikið og til þess að við getum boðið upp á ávexti á milli mála var þessi ákvörðun tekin. Morgunkorn hefur hækkað til jafns við annað og völdum við hafragrautinn því hann er hollur og ódýr morgunmatur. Þessi breyting er gerð í samráði við leikskólann Krók sem mun einnig bjóða upp á hafragraut alla morgna."
Laut og Krókur opnuðu í gær að nýju eftir sumarfrí.