Sveit Golfklúbbs Grindavíkur féll úr þriðju deild í þá fjórðu í sveitakeppni Golfsambands Íslands um helgina en keppt var á Húsavík. ,,Það er samt sem áður engin örvænting í okkar herbúðum, því nú er um að gera að snúa bökum saman og ná að endurheimta sæti okkar í 3. deildinni að ári," segir á heimasíðu GG.
Helsta afrek GG á mótinu var að Hávarður Gunnarsson náði þeim áfanga að fara holu í höggi á 5. braut vallarins.