Grindvíkingur vikunnar er Margrét Rut Reynisdóttir sem var eini Grindvíkingurinn sem tók þátt í unglingalandsmóti UMFÍ á dögunum. Margrét æfir sund af kappi með sunddeild UMFG. Hún gerði sér lítið fyrir og vann fern gull, eitt silfur og eitt brons í sundkeppni landsmótsins. Hún er aðeins 12 ára og með þeim efnilegustu á landinu í sínum aldursflokki. Hún æfir einnig fótbolta af kappi með 5. flokki.
Nafn? Margrét Rut Reynisdóttir.
Fjölskylduhagir? Bý með foreldrum mínum Ásrúnu Kristinsdóttur og Reyni Þráinssyni, fjögurra ára systur minni Örnu Rún og heimiliskettinum Dimmu.
Skóli? Er að fara í 7. bekk í Grunnskólanum í Grindavík.
Uppáhalds-
...maturinn? Fiskrétturinn hennar mömmu með hrísgrjónum og salati.
...drykkurinn? Kristal sport og vatn.
...staðurinn? Auðvitað Grindavík og sumarhúsið hans afa Didda í Svíþjóð.
...leikarinn? Grindvíkingurinn Víðir Guðmundsson.
...bókin? Bróðir minn Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren.
...íþróttamaðurinn? Steven Gerrard, Michael Phelps svo er ég mjög ánægð með frænda minn hann Óla Baldur Bjarnason.
...liðið? Grindavík og Liverpool.
Ef þú værir ein á eyðieyju í eitt ár. Hvaða fimm hluti tækir þú með þér? Ég tæki með mér Fast skin sundföt, sundgleraugu, froskalappir, Grindavíkur sundhettuna og vatnsheldan MP3 svo það verði stemning hjá mér þegar ég syndi heim.
Hvað er best við Grindavík? Grindavík er ótúlega góður staður, hér er gott að stunda íþróttir en það er ótrúlega mikill munur eftir að nýja höllin kom. Núna vantar bara innisundlaug svo maður geti náð betri árangri í sundinu (nú verður Maggi sundþjálfari ánægður með mig).
Hvernig gekk þér á unglingalandsmótinu? Mér gekk mjög vel, vann 4 gull, eitt silfur og eitt brons. Ég bætti mig aðeins í 50m bringu og 50m flugi og hafði bara mjög gaman af þessu öllu saman.
Þú tókst líka þátt í stóra landsmótinu á Akureyri, hvort landsmótið fannst þér skemmtilegra og af hverju? Mér fannst skemmtilegra á Akureyri út af því að þar voru frábæru krakkarnir í sunddeildinni með mér. Það er ekki bara gaman að vinna til verðlauna, félagsskapurinn skiptir líka miklu máli. Á setningarhátíðinni á Sauðarkróki heyrði ég krakka frá Keflavík gera grín af því að ég væri eini keppandinn frá Grindavík, það var því bara ljúft þegar ég náði að vinna stelpur frá því félagi í sundlauginni.
Eitthvað að lokum? Krakkar, förum á Unglingalandsmótið á Grundarfirði á næsta ári, ég ætla ekki að vera aftur ein frá Grindavík á setningarhátíðinni.