Eftir að nýja tjaldsvæðið var tekið í gagnið var ákveðið að kanna hug tjaldgesta til svæðisins, þeirrar þjónustu sem þar er í boði einnig hvað varðar markaðsmál og fleira. Ekki er búið að klára að fara yfir könnunina alla en af þeim svörum sem búið er að fara yfir er ljóst er að mikil ánægja er með nýja tjaldsvæðið.
,,Til hamingju með tjaldsvæðið. Gaman að sjá hvað þið leggið mikinn metnað í að gera stæðið flott og góð þjónusta," skrifaði einn ánægður gestur tjaldsvæðisins.
Gestirnir koma víða af landinu og útlendir gestir eru frá hátt í 20 löndum.
Helst er kvartað yfir því að ekki er sturtuaðstaða, internet, þvottaðastaða og fleira sem verður klárt á næsta ári þegar nýtt þjónustuhús verður tekið í gagnið. Þá koma fram ýmsar aðrar áhugaverðar upplýsingar sem nýtist bænum við markaðssetningu á tjaldsvæðinu í framtíðinni.
Nánar verður greint frá niðurstöðum könnunarinnar þegar þær liggja fyrir um næstu mánaðarmót.