Tælensk-íslenska félagið stóð fyrir Tælendingamóti á tjaldsvæðinu í Grindavík um helgina. Alls mættu á annað hundrað Tælendingar og gestir á tjaldsvæðið en Grindvíkingar voru boðnir sérstaklega velkomnir og þó nokkrir sem mættu til að smakka tælenskan mat og kynnast tælenskri menningu.
Að sögn Phetchada Khongchumchuen sem sá um að skipuleggja Tælendingamótið tókst það virkilega vel og var mikil ánægja á meðal Tælendinganna með tjaldsvæðið og móttökurnar. Þetta var fjölskylduskemmtun þar sem ýmislegt var til gamans gert. Á laugardagskvöldinu var svo karokí og tælensk hljómsveit tók lagið. Boðið var upp á grillað svínakjöt, grillaðar svínabollur, djúpsteiktar rækjur, núðlur og vorrúllur og fleira sem smakkaðist frábærlega vel. Þegar heimasíðan leik við var rífandi stemming á svæðinu og gestir á öllum aldri.