Íbúi í Grindavík sendi bæjarráði bréf sem tekið var fyrir í gær. Íbúinn hafði hafði áður sent lögreglunni í Keflavík þetta bréf. Íbúinn óskar eftir því að tekið verði sérstaklega á hraðakstri og spyrnum í Grindavík, sérstaklega við Austurgötu, Hafnargötu og Víkurbraut.
Íbúinn bendir á mikla umferð barna og unglinga sem fer á æfingar á íþróttasvæðinu og þá hefur gestum fjölgað mikið á tjaldsvæðinu. Þetta bjóði hættunni heim því hrakakstur sé stundaður við Austurgötu, sérstaklega eftir kl. 23:30 í kvöldin þegar lögreglan er farin úr Grindavík.
Bæjarráð þakkaði ábendingar varðandi hraðakstur á götum bæjarins. Bæjarstjóra og forstöðumanni tæknisviðs var falið að fylgja málum eftir.