Umhverfisnefnd Grindavíkurbæjar hefur ákveðið hverjir fái umhverfisverðlaun bæjarins 2009. Verðlaunin verða svo afhent með pompi og pragt í næsta mánuði. Nefndinni var nokkur vandi á höndum því einstaklingar og fyrirtæki hafa sannarlega tekið til hendinni undanfarin ár.
Umhverfisnefndin komst að eftirfarandi niðurstöðu:
Verðlaun fyrir best heppnaða viðgerð á gömlu húsi: Magnús Gunnarsson og Margrét Eyjólfsdóttir, Víkurbraut 15 (Brimnes).
Verðlaun fyrir snyrtilegasta fyrirtækið: Björk Sverrisdóttir og Magnús Arthúrsson, Gistiheimilið Borg Borgarhrauni 2.
Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð: Eðvard Júlíusson og Elín Alexandersdóttir, Skipastígur 3.
Verðlaun fyrir fallegan garð og samspil náttúru og gróðurs: Sigurður Garðarsson og Brynhildur Vilhjálmsdóttir, Árnastíg 8.