Um síðustu helgi lögðu slökkviliðsmenn heldur meira í helgarvaktina hjá Slökkviliði Grindavíkur en áður. Vaktin hittist kl. 9 á slökkvistöðinni og var þar borinn fram dýrindis morgunmatur. Eftir morgunmatinn og stutt spjall var haldin góð æfing og í hádeginu hittust menn og fjölskyldur í heimahúsi og grilluðu pylsur.
Krakkarnir léku sér síðan saman í blíðskaparveðri.
Þótti þetta heppnast mjög vel og var skemmtileg tilbreyting. Fleiri myndir á http://www.slokkvilid.com/AlbumBirta.aspx?id=444f9a40-ae39-4ddf-ae4c-ecd6e1981aed