Eins og við greindum frá á heimasíðunni í gær heldur Golfklúbbur Grindavíkur golfmót næsta laugardag, þann 25. júlí, til styrktar fjölskyldu Sigurfinns Jónssonar sem lést í umferðarslysi á Grindavíkurvegi í vor. Hann lét eftir sig eiginkonu og þrjú börn. Þetta verður eitt af veglegri golfmótum sem GG hefur haldið og verða glæsilegir vinningar:
1. verðlaun:
Tvö ferðagasgrill að verðmæti ca. 2 x 50þús kr.- frá Olís
2. verðlaun:
2 x matur fyrir tvo á Hótel Northern Light Inn, 2 konfektkassar Nóa Síríus að verðmæti og 2 x askja af léttfrystum saltfisk frá Þorbirni samtals að verðmæti ca. 2 x 30þús kr.-
3. verðlaun:
2 x 10þús kr.- bensínkort frá Skeljungi, 2 x 9kg öskjur af þorsk/ýsuflökum frá Þorbirni og 2 konfektkassar frá Nóa Síríus samtals að verðmæti ca. 2 x 25þús kr.-
4. verðlaun:
Tveir pútterar frá Golfbúð Hafnarfjarðar og 2 x 9kg öskjur af þorsk/ýsuflökum frá Þorbirni að verðmæti ca. 2 x 15þús kr.-
5. verðlaun:
2 x 9kg öskjur af þorsk/ýsuflökum frá Þorbirni og 2 x 5.000 kr.- gjafabréf á pizzustaðnum Mamma Mía í Grindavík, samtals að verðmæti ca. 2 x 12,5þús kr.-
Námundarverðlaun verða eftirfarandi:
Á 4./17. holu(ein mæling):
2 x pizzutilboð frá Lukku Láka í Grindavík og 2 x bónpakkar frá N1 samtals að verðm. 2 x 10þús kr.-
Á 8. holu:
FJÖLSKYLDUÁRSKORT Í BLÁA LÓNIÐ FYRIR ÞANN SEM SLÆR HÖGGIÐ OG 5.000 KR.- GJAFABRÉF Í AÐALSPORT Í GRINDAVÍK FYRIR MAKKERINN! Samtals að verðmæti ca. 45þús kr.-!
Á 13. holu:
Aðgangur að betri stofu ásamt vörum frá Bláa Lóninu fyrir þann sem slær höggið og 5.000 kr.- gjafabréf í Aðalsport í Grindavík fyrir makkerinn!! Samtals að verðmæti ca. 35þús kr.-
Heildarverðmæti vinninga er um 330þús kr.-.
Önnur fyrirtæki sem styrkja þetta mót eru:
Landsbanki Íslands í Grindavík, Sparisjóðurinn í Grindavík, Vísir hf, Sílfell ehf og Þróttur ehf.
Þar sem þetta er styrktarmót þá er þátttökugjald 4.000 kr. og skráning á golf.is. Spilað er eftir texas scramble fyrirkomulagi.