Grindvíkingum fatađist flugiđ illilega í fyrsta leik liđanna sem ţeir töpuđu í Röstinni, en ţeir völtuđu yfir KR-ingana í öđrum leik liđanna. Í kvöld var ţví ađ duga eđa drepast fyrir bćđi liđ ef ţau ćtluđu sér áfram í keppninni.
Grindvíkingar hófu leikinn í kvöld betur en gestirnir úr vesturbćnum og leiddu, naumlega ţó, 23-20, eftir fyrsta leikhluta. Ţeir héldu forskotinu fram ađ leikhléi, en KR tóku sig vel á í upphafi seinni hálfleiks og unnu upp forskotiđ og komust yfir á tímabili. Ţá tóku Grindvíkingar viđ sér á ný og tóku góđan kafla ţar sem Pétur Guđmundsson fór fyrir sínum mönnum međ tveimur 3ja stigakörfum í röđ. Munurinn fór upp í 12 stig fyrir heimamenn sem virtust hafa leikinn tryggilega í hendi sér. Ţá fór ađ gćta á ţví ađ Grindvíkingar hćttu ađ sćkja og reyndu ţess í stađ ađ verja forskotiđ, en slíkt kann ekki góđri lukku ađ stýra. KR-ingarnir gengu á lagiđ og náđu ađ minnka muninn allt niđur í eitt stig áđur en heimamenn hrukku í gírinn enn einu sinni og náđu ţeir ađ klára leikinn eftir spennandi lokakafla ţar sem hefđi getađ brugđiđ til beggja vona.
Friđrik Ingi hjá Grindavík var ánćgđur međ leik sinna manna í kvöld, en bćtti viđ ađ ţeir mćttu ekki viđ mistökum eins og ţeir gerđu sig seka um á köflum í kvöld. ?Ţađ getur fariđ illa ţegar mađur leikur viđ djöfulinn, en ţetta hafđist. Ţađ er raunar aldrei auđvelt ađ ná upp baráttu eftir stóra sigurleiki eins og sá síđasti var, en nú erum viđ farnir ađ horfa til undanúrslitanna. Ţau leggjast bara vel í mig ţar sem ţetta eru allt alvöruliđ.?