Í aukablaði Fréttablaðsins í dag sem nefnist Heilsa og útivist, er fjallað um framkvæmdir við golfvöllinn í Grindavík, Húsatóftavöll en unnið er að því að stækka hann úr þrettán holum í átján. Þar segir m.a.:
,,Við erum með góðan strandvöll meðfram sjó og tún eins og margir aðrir. Nú mun hraunsvæði bætast við þannig að völlurinn verður í raun þrískiptur og alger náttúrperla," segir Páll Erlingsson formaður Golfklúbbsins í Grindavík um völlinn á staðnum. Unnið er að stækkun hans úr 13 holum í 18 og á hann að verða fullbúinn á 20. afmælisári klúbbsins 2011. Hönnuður er Hannes Þorsteinsson.
Framkvæmdirnar ganga vel að sögn Páls. Búið er að ryðja fjórar brautir og styttist í að sáð verði í þær. ,,Við höfum allt efnið á staðnum og þurfum ekki að keyra neitt að," segir hann. "Bara grjóthreinsa og sá í."