Bæjarráð Grindavíkur samþykkti tillögu frá atvinnu- og ferðamálnefnd um flutningsstyrk til fyrirtækisins Hafnots til Grindavíkur. Hafnot sérhæfir sig í þörungaþurrkun en fyrirtækið var kynnt á dögunum á heimasíðunni og lesa um það hér.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt:
,,Þörungaþurrkun hefur hafið starfsemi sína í Grindavík. Umsækjandi hefur farið í gegnum umsóknarferli ásamt því að koma á fund með atvinnu- og ferðamálanefnd til að kynna starfsemi sína. Grindavíkurbær sér um að greiða flutninginn á þurrkklefa, kr. 200 þúsund. Styrkur kr. 300.000 á mánuði í 4 mánuði. Styrkur greiddur út mánaðarlega þegar viðkomandi hefur sent afrit af húsaleigu, rafmagni og öðrum rekstri. Styrkupphæð alls er kr.1.400.000."
Meirihluti B og S samþykkti tillöguna. Fulltrúi D-lista var á móti og lét bóka: ,,Fulltrúi D lista er andvígur því að fyrirtæki fái styrki frá bæjarfélaginu. Nær væri að kaupa hlutafé í fyrirtækjum."