Alls hafa 62 krakkar skráð sig í sumarlesturinn hjá Bókasafni Grindavíkur. Þau hafa verið dugleg að gefa trúðunum okkar blöðrur til að skreyta sig með, eins og sjá má á ganginum við safnið, en hver blaðra er staðfesting á lesinni bók.
Enn er hægt að skrá sig til leiks, því hann stendur fram í ágúst.
Bókasafnið - heilsulind hugans!