Heimasíðunni hafa borist ábendingar um fleiri Grindvíkinga sem hlupu Laugavegsmaraþonið um helgina en reyndar eru þeir ekki búsettir hér en einu sinni Grindvíkingur - ávallt Grindvíkingur!
Þórhallur Tomas Buchholz bróðir Christine sem segir frá í fyrri fréttinni, kláraði hlaupið á frábærum tíma. Hann hljóp á 7 klukkustundum og 32 mínútum rúmum.
Gunnar Freyr Gunnarsson (bjó áður á Selsvöllum) hljóp á 6 klst og 53 mínútum og bræðurnir Tómas Þór og Gunnlaugur Eiríkssynir náðu einnig ágætum tíma, Tómas Þór hljóp á 7 klst og 30 mínútum en Gunnlaugur á 7 klst og 47 mínútum.