Þrettánda Laugavegshlaupið var haldið síðasta laugardag en það er 54 km að lengd. Til keppni voru skráðir 342 hlauparar frá 15 löndum, 81 kona og 260 karlar, sem er þátttökumet. Nokkrir Grindvíkingar úr skokkhópnum Eldvörpum tóku þátt og stóðu sig frábærlega.
María Jóhannesdottir og Christine Buchholz urðu í 12. og 13. sæti í kvennaflokki, þær komu saman í mark eftir 6 klukkustundir, 25 mínútur og 47 sekúndur, sem er frábær árangur. Í sínum aldursflokki, 40-49 ára, urðu María og Christine í 6. og 7. sæti.
Ólafur Helgi Valsson hljóp á 6 klukkustundum og 51 mínútu og varð í 49. sæti í sínum aldursflokki af 81 keppenda. Kristinn Reimarsson þurfti hins vegar að hætta keppni.
Veðrið var mjög gott í Landmannalaugum, sól öðru hvoru og hægur vindur. Á leiðinni hrepptu hlauparar ýmis konar veður og lentu m.a. í snjó. Í Þórsmörk var rigning framan af degi en seinni partinn þegar flestir voru að koma í mark var frábært veður. Alls luku 313 hlaupinu sem er þátttökumet.
Á myndinni koma María og Christine í mark í Laugavegshlaupinu á laugardaginn.