Grindavík lagði Stjörnuna að velli með 4 mörkum gegn 2 í úrvalsdeild karla í knattspyrnu eftir að hafa lent undir 1-0. Eftir dapran fyrri hálfleik fóru Grindvíkingar á kostum í þeim seinni. Óli Baldur Bjarnason skoraði fyrsta markið, hann lagði upp annað markið fyrir Gilles Ondo, Zoran Stamenic skoraði þriðja markið með þrumufleyg og Scott Ramsey innsiglaði sigurinn.
Óli Stefán Flóventsson miðvörður Grindvíkinga var að spila sinn fyrsta leik fyrir Grindavík í sumar eftir að hann kom heim frá Vard í Noregi.
,,Þetta er bara geðveikt frábært að koma og byrja á sigri það gæti ekki verið betra," sagði Óli Stefán við Fótbolta.net eftir leikinn.
Óli Stefán var ekki alveg búinn að finna taktinn í íslenska boltanum eftir að Grindvíkingar fengu mark á sig eftir aðeins 51 sekúndu en eftir markið steig hann ekki feilspor og var hann eins og klettur í vörn Grindvíkinga.
,,Við vorum ryðgaðir ég fékk hann yfir mig eftir þrjár eða fjórar sekúndur og svo mark uppúr horninu. Fall er fararheill það eru stigin sem telja að lokum."
Grindvíkingar voru í vandræðum að koma sér í færi í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik átti Óli Baldur Bjarnason frábæran leik og jafnaði leikinn og lagði upp annað markið. Og breytti leiknum.
,,Það er alveg óhætt að segja það við vorum í vandræðum með að setj'ann, við vorum að búa til eitthvað en hann kom og kláraði og það var það sem að þurfti til að brjóta ísinn."
Seinni hálfleikur var algjörlega eign Grindvíkinga þar sem að Stjörnumenn voru mun betri í þeim fyrri.
,,Við vorum tilbúnir að berjast fyrir hvern annan og það skein svoleiðis Grindavíkurhjartað í seinni hálfleik," sagði Óli Stefán að lokum við Fótbolta.net.