Nú standa yfir framkvæmdir á Norðurgarði, hafnarkantinum fyrir framan útgerðarfyrirtækið Vísi hf. Fullkláruður Norðurgarður verður mikil lyftistöng fyrir Grindavíkurhöfn og gjörbyltir allri aðstöðu við höfnina.
Bryggjukanturinn er klár en á þessu ári verður lokið við að steypa þekjuna og ganga frá rafmagni, vatni o.fl. en ríkisvaldið stendur straum af þessum kostnaði á móti Grindavíkurbæ. Siglingamálastofnun tekur þátt í kostnaði á nýju vigtarhúsi að einhverji leiti sem rís á bryggjunni á Norðurgarði en húsið mun einnig gjörbylta allri aðstöðu.