Aron Freyr dúxađi í Hrađbraut

  • Fréttir
  • 16. júlí 2009

Grindvíkingurinn Aron Freyr Jóhannsson gerði sér lítið fyrir og dúxaði í Menntaskólanum Hraðbraut en útskriftin fór fram í síðustu viku. Annar Grindvíkingur, Arnór Geir Halldórsson, útskrifaðist einnig af Hraðbraut með góða einkunn en á Hraðbraut er hægt að ljúka stúdentsprófi á tveimur árum.

Aron Freyr útskrifaðist með 8,96 í meðaleinkunn. Hann fékk jafnframt verðlaun fyrir bestan árangur í íslensku og hélt ræðu nýstúdenta við útskriftina.

Aron Freyr og Arnór Geir eru báðir fæddir 1991.

Aron Freyr stefnir að því að fara til Bandaríkjanna í haust sem skiptinemi áður en hann fer í nám í verkfræði, annað hvort á Íslandi eða í Bandaríkjunum. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir