Grindvískir bændur hafa nýtt góðviðrið undanfarna daga í heyskap enda veðurblíða með eindæmum. Að sögn Guðjóns Þorlákssonar í Vík hefur heyskapurinn gengið vel og er víðast hvar langt kominn en þetta tekur sjö til 10 daga í góðu veðri.
Guðjón var á fullu í heyskap ásamt fleiri góðum mönnum á Helgatúni í morgun en túnin þar í kring bera nokkur skemmtilegt nöfn. Guðjón segir sprettuna mjög góða í ár enda tíðarfarið með besta móti.
Á myndinni hér að neðan eru Guðmundur Sigurðsson og Guðjón í Vík að ræða saman málin enda í nógu að snúast, unnið er frá sjö á morgnana og til miðnættis alla daga.